Jæja, þá er næstum því komin mánuður. Það er búið að vera virkilega gaman og mikið er búið að gerast síðan ég skrifaði síðast svo ég ætla bara að segja frá svona aðal atriðum því annars yrði þetta nú of langt.
17. ágúst fór ég með Shannon, vinkonum hennar Amanda og Kayla og tvem kennurum úr skólanum til Boston. Við eyddum öllum deginum þar og löbbuðum "the freedom trail" sem er leið um Boston á alla sögulegu staðina.
Á afmælisdaginn hans pabba komu nokkrir vinir Shannons til okkar um kvöldið og við kveiktum eld út í garði, það voru grillaðir sykurpúðar og búið til "smores" sem er alveg hrikalega gott!
21. ágúst fór ég til Conneticut þar sem foreldrar Wendyar búa. Þar hitti ég flesta ættingja hennar sem búa hér nálægt. Við fórum öll saman í leikhús á leikrit sem heitir "The Producers" það var virkilega fyndið leikrit. Eftir leikritið fórum við öll aftur heim til foreldra hennar og borðuðum kvöldmat saman.
"Tryouts" fyrir blakið byrjaði svo á mánudags morgninum og var út vikuna, á fimmtudeginum fengum við svo að vita hver var í liðinu. Ég komst í "varsity" liðið, sem er fyrir "seniors" og "juniors". Fékk treyju með sama númeri og ég er með heima sem er 12 :) Í þessari sömu viku kom jarðskjálfti, sem ég reyndar fann ekki fyrir og viðvaranir við fellibylnum "Irene". "Irene" kom svo á sunnudeginum, við misstum rafmagn í nokkra tíma og nokkrar trjágreinar brotnuðu en annars urðu engar skemmdir hjá okkur. Þó ég held að 30% af fylkinu var rafmagnslaust í frekar langan tíma.
1. september keppti ég tvo leiki á móti tvem skólum í Rhode Island fyrir "injury fund" sem er til að hjálpa okkur við að borga sjúkrareikninginn ef við skyldum slasast á meðan við erum að spila blak, við unnum báða leikina svo blaktímbilið byrjaði mjög vel hjá okkur. :D Skólinn átti að byrja í dag en honum var seinkað vegna fellibylsins. Daginn eftir fór ég á fyrsta ameríska fótboltaleikinn minn, eftir hann fórum við til Matts og kveiktum eld og grilluðum sykurpúða.
3. september hitti ég trúnaðarmanninn minn sem er kennari í Pilgrim, svo um kvöldið fór ég með Shannon á minningarathöfn í skólanum fyrir tvær stelpur sem dóu í bílslysi 31. ágúst, það var ótrúlegt að sjá hvað margir komu til að heiðra minningu þeirra. Daginn eftir fór ég á "state fair" í Conneticut með fjölskyldu Wendyar, við eyddum öllum deginum þar og borðuðum svo kvöldmat með fjölskyldu hennar.
Á morgun byrjar svo skólinn og ég er orðin frekar spennt að byrja í honum og hafa eitthvað að gera á daginn :) Ég mun svo skrifa fljótlega aftur um fyrstu dagana í skólanum, endilega commentið svo ég viti að eitthver er að nenna að lesa þetta :)
Við Tómas Emil hérna mjög svo spennt að lesa yfir morgunmatnum og munum bókað lesa betur í kvöld :)
ReplyDeleteGaman að fá að lesa og við viljum fá skypedate sem fyrst :)
Lovjú :*
Sara Björk og Tómas Emil
Auðvitað lesum við þetta og bíðum spennt eftir nýrri færslu ;-)
ReplyDeletemamma
Ég býð spennt eftir næstu færslu:D
ReplyDeleteFrábært að heyra hvað allt gengur vel! hlakka til að heyra meira og tala við þig á skype ;)
ReplyDeleteHæ skvís er að fylgjast með þér gaman!! gagni þér áfram vel og endilega setja inn myndir :D knús
ReplyDelete